Ragnhildur Sif Reynisdóttir.

Sif sækir hugmyndir sínar víða að bæði hér á Íslandi þar sem nátturan er stórbrotin og fjölbreytileg, svo á ferðum sínum erlendis.  

Hún er fædd og uppalin í Reykjavík, hefur búið bæði í Arhus Danmörku og Birmingham UK en þar sótti hún hugmynd sína með net skartgripina, Selfridges verslunin í  Birmingham eitt af kennileitum Bretlands, virkilega flottur arkitektur, stór glæsileg bygging í Bullering verslunarmiðstöðinni. 

Hún hefur mörg áhugamál, íþróttir skipa stóran sess hjá henni, en hún er í heilsurækt í World class, fer í göngur, joga og elskar að dansa. Hún hefur gaman af ýmiskonar      hönnun, finnst gott að vera á ferðini hvort sem er heima á Íslandi eða erlendis og skoða td. arkitektur, landslag, tísku, fallega hluti ofl.

 Í dag er Sif í mastersnámi í skartgripahönnun (MA Design, metalwork and jewelry) hálfu námi (part time) í Bretlandi.  Hún fór í eins árs nám í skartgripahönnun 2006 ,   í University of Central England,  Birmingham, fór á fjölmörg námskeið, kláraði bæði meistara- og sveinspróf í gullsmíði við Iðnskólann í Reykjavík, meistari hennar var Reynir Guðlaugsson gullsmíðameistari,  auk þess hefur hún tekið mörg námskeið tengt bæði faginu, rekstri fyrirtækis ofl.

Í dag starfar hún og rekur  eigið fyrirtæki, Sif gullsmíðaverkstæði. Vinnur bæði sem skartgripahönnuður og framkvæmdastjóri, en það var  stofnaði 2001 ásamt því að taka að sé verkefni fyrir Gull og silfursmiðjuna Ernu ehf. sem er fjölskyldu fyrirtæki hennar, þar hefur hún starfað og hjálpað til frá æsku. Hún sér aðalega um smíðar á þríkrossinum.

Á námsárum sínum vann hún við ýmis störf sem hafa nýst henni vel.

Hún opnaði heimasíðuna: www.jewelry.is   apríl 2007.

Skartgripir hennar henta konum á öllum aldri, tilvalið í fermingagjafir, afmælisgjafir, útskriptagjafir, morgungjafir, tækifærisgjafir ofl. Hún vonar að heimasíðan falli vel inn hjá önnu sömu nútíma fólki þar sem auðvelt er að versla vörurnar á netinu án frekari fyrirhafnar og fá vöruna senda í pósti.